Pixel 9a frá AbovePhone
Pixel 9a sameinar öryggi, gæði og hagkvæmni í fallegum og notendavænum síma.
Stýrikerfið frá AbovePhone tryggir þér fullkomna friðhelgi einkalífsins, það hlustar enginn og ekkert á þig í gegnum símann nema þú leyfir það sérstaklega.
Tvöföld myndavél tekur skýrar og litríkar myndir í miklum gæðum, hvort sem um er að ræða dagsbirtu eða krefjandi birtuskilyrði. Skjárinn er bjartur og skilar skörpum litum sem gera myndir, myndbönd og annað efni sérstaklega ánægjulegt á að horfa. Síminn er hannaður til að þola daglega notkun og er með öfluga vörn gegn ryki og vatni. Framleiðandi mun jafnframt veita öryggisuppfærslur fyrir tækið fram í apríl 2032, sem tryggir notendum aukið öryggi og lengri endingartíma. Pixel 9a er því frábær kostur fyrir þá sem vilja nútímalegan og áreiðanlegan snjallsíma á hagstæðu verði.